Að sögn Christian Schindler, framkvæmdastjóra hjá Lufthansa hefur sætanýting í Íslandsfluginu verið 83 prósent í sumar og hlutfallið fyrir ágúst verður ennþá hærra. Kemur þetta fram í viðtali við hann á vefsíðunni Túrista.is .

Upphaflega gerðu áætlanir Lufthansa ráð fyrir að aðallega Þjóðverar sem myndu nýta sér Íslandsflug félagsins en eftirspurnin frá öðrum mörkuðum, til dæmis Kína og Ísrael, hefur verið mun meiri en búist var við. Schindler bendir á að Lufthansa sé með mjög sterka stöðu í Evrópuflugi frá Kína og þar hafi áætlunarferðirnar til Íslands verið kynntar sérstaklega. Þess má geta að það sem af er ári hefur kínverskum ferðamönnum hér á landi fjölgað um 76,8 prósent samkvæmt talningu Ferðamálastofu.

Það eru í langflestum tilfellum erlendir ferðamenn sem skipa farþegarýmin hjá Lufthansa í fluginu til og frá Íslandi að sögn Schindler. Þeir íslensku farþegar sem nýta sér flugið hafa í mörgum tilfellum einnig bókað tengiflug og þá er ferðinni oftast heitið til flugvalla í Serbíu, Ítalíu eða Austurríki.

Þrátt fyrir góðar viðtökur þá hafa stjórnendur Lufthansa ekki tekið ákvörðun um fjölgun ferða til Íslands á næsta ári.