Stjórn þýska flugfélagsins Lufthansa hefur samþykkt pöntun á 35 nýjum Airbus þotum. Flugfélagið hefur pantað fimm A319 þotur, tíu A320 og fimmtán A321 þotur sem afhentar verða árið 2007. Einnig hefur verið gefið samþykki á kaupum á fimm A330 þotum Kaupverð var ekki uppgefið. Með kaupunum á A330 getur Lufthansa aukið umsvif sín á lengri flugleiðum, þrátt fyrir þær tafir sem hafa orðið á afhendingu á A380 þotunum.