Þýska flugfélagið Lufthansa mun bjóða upp á fjögur flug á viku milli Þýskalands og Íslands. Þar af verða þrjú flug til Frankfurt og eitt flug til Munchen frá Keflavík. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Fyrirtækið hefur jafnframt lengt flugtímabilið sem mun nú standa frá 2. maí til 26. september.

Hægt er að komast til 190 áfangastaða í 75 löndum með Lufthansa í gegnum Frankfurt, og er markmið félagsins að tengiflug þeirra náist á innan við tveimur tímum.