Lúðvík Geirsson, sem starfað hefur sem bæjarstjóri í Hafnarfirði í 8 ár, hefur ákveðið að láta af störfum. Guðmundur Árni Rúnarsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði verður ráðinn bæjastjóri.

Lúðvík hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir að í sinni bæjarstjóratíð hafi hann lagt áherslu á gott samstarf og samráð við bæjarbúa alla. „Í ljósi þeirra eftirmála nýliðinna kosninga og ákvarðana um skipan í embætti bæjarstjóra er einboðið að ekki mun ríkja sú almenna sátt sem er að mínu mati nauðsynleg til að viðhalda áfram víðtækri samvinnu og samráði í bæjarfélaginu,“ segir Lúðvík í yfirlýsingunni.

Lúðvík lætur af störfum því hann vill tryggja að bæjarstjórinn fái þann starfsfrið sem nauðsynlegur er til að takast á við þau mikilvægu verkefni sem m.a. hafa verið kynnt í ítarlegri stefnuyfirlýsingu nýs meirihluta. Hann hefur því óskað eftir því við sitjandi meirihluta að fá að ljúka sínum störfum sem bæjarstjóri. Hann hættir sem bæjarstjóri frá á með deginum í dag.

„Þessi ákvörðun er alfarið mín og er tekin með hagsmuni bæjarfélagsins og bæjarbúa í huga. Það andóf sem pólitískir andstæðingar meirihlutaflokka bæjarstjórnar hafa staðið fyrir og beinst hafa fyrst og fremst að stöðu minni sem bæjarstjóra í kjölfar nýafstaðinna kosninga mega á engan hátt veikja stöðu sitjandi meirihluta, né heldur skapa óróa og ósamstöðu sem hafnfirskt samfélag þarf síst á að halda um þessar mundir,“ segir Lúvíðk í yfirlýsingunni.

Guðmundur Rúnar hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar frá árinu 2002 og var varabæjarfulltrúi næsta kjörtímabil á undan. Hann hefur átt sæti í bæjarráði og verið þar formaður. Hann hefur jafnframt verið formaður Fjölskylduráðs og forseti bæjarstjórnar.

Yfirlýsing Lúðvíks í heild:

Á þeim 8 árum sem ég hef gegnt starfi bæjastjóra hef ég lagt ríka áherslu á gott samstarf og samráð við bæjarbúa alla. Sú samstaða hefur verið mikilvæg í þeirri gríðarmiklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í bæjarfélaginu á þessum tíma þegar íbúum hefur fjölgað um nær fjórðung.

Í ljósi þeirra eftirmála nýliðinna kosninga og ákvarðana um skipan í embætti bæjarstjóra er einboðið að ekki mun ríkja sú almenna sátt sem er að mínu mati nauðsynleg til að viðhalda áfram víðtækri samvinnu og samráði í bæjarfélaginu.

Til að tryggja að bæjarstjórn fái þann starfsfrið sem nauðsynlegur er til að takast á við þau mikilvægu verkefni sem m.a. hafa verið kynnt í ítarlegri stefnuyfirlýsingu nýs meirihluta, hef ég óskað eftir því við bæjarfulltrúa sitjandi meirihluta að ljúka mínum störfum sem bæjarstjóri og ganga ekki frá ráðningasamningi til næstu tveggja ára eins og bæjarstjórn hafði samþykkt fyrir sitt leyti á fundi sínum þann 14. júní. Mun ég því láta af störfum bæjarstjóra Hafnarfjaðar frá og með deginum í dag.

Þessi ákvörðun er alfarið mín og er tekin með hagsmuni bæjarfélagsins og bæjarbúa í huga. Það andóf sem pólitískir andstæðingar meirihlutaflokka bæjarstjórnar hafa staðið fyrir og beinst hafa fyrst og fremst að stöðu minni sem bæjarstjóra í kjölfar nýafstaðinna kosninga mega á engan hátt veikja stöðu sitjandi meirihluta, né heldur skapa óróa og ósamstöðu sem hafnfirskt samfélag þarf síst á að halda um þessar mundir.

Á þeim aldarfjórðungi sem ég hef tekið virkan þátt í bæjarmálum í Hafnarfirði, þar af sem bæjarfulltrúi í 16 ár og bæjarstjóri undanfarin 8 ár hef ég lagt höfuðáherslu á að vinna að framgangi og framförum í almannaþjónustu og treysta stöðu Hafnarfjarðar sem fyrirmyndar á þeim vettvangi.

Ég er stoltur og hreykinn af þeim árangri sem bæjaryfirvöld í breiðri sátt með starfsmönnum bæjarins og bæjarbúum hafa náð fram og ég veit að nýr meirihluti í bæjarstjórn undir forystu nýs bæjarstjóra mun standa samhentur um þær sömu áherslur á þessu nýja kjörtímabili.

Ég vil á þessum tímamótum þakka öllu samstarfs- og samferðarfólki á undanförum árum fyrir sérstaklega góð og ánægjuleg samskipti og samvinnu. Um leið óska ég Hafnfirðingum öllum bjartrar framtíðar í gróandi og góðu bæjarsamfélagi.

Lúðvík Geirsson