Fyr­ir­tæk­in Luxor tækjaleiga og IB Creati­ve til­kynntu í dag um sam­ein­ingu fyr­ir­tækj­anna und­ir nafni þess fyrr­nefnda. Þetta kemur fram á vef mbl.is .

Fyr­ir­tækið Luxor er þekkt­ast fyr­ir ljósa, hljóð, skjá,- og sviðsleigu hér á landi. IB Creati­ve er þekkt­ast fyr­ir mynd­bands­hönn­un á ýms­um verk­efn­um.

IB Creative hefur jafnframt séð um hönn­un og þjón­ustu við er­lend leik­hús og hljóm­sveit­ir á borð við Two Door Cinema Club, Blur og Backstreet Boys.

Mark­mið sam­ein­ing­ar­inn­ar er að efla enn frek­ar hönn­un verk­efna og þjón­ustu við sviðslist­ir.