Gengi hlutabréfa í ítalska fyrirtækinu Luxottica Spa hækkuðu mikið í kauphöllinni í Mílan í gær í kjölfar þess að tilkynnt var um að fyrirtækið hygðist kaupa annan gleraugnaframleiðanda, Oakley, fyrir um 2,1 milljarð Bandaríkjadala. Gengi bréfa félagsins hækkaði um 7% en fjárfestabankinn Merrill Lynch hækkaði markgengi Luxottica um þrettán prósent miðað við að af kaupunum verði.