Þær ríflega 70 lúxusíbúðir sem eru komnar til sölu við Austurhöfn í miðbæ Reykjavíkur eru metnar á þrettán milljarða króna, miðað við uppsett verð. Meðalfermetraverð, af þeim íbúðum sem verð er gefið upp, nemur tæplega 1,2 milljónum króna.

Þetta má sjá út frá íbúðalista sem er á heimasíðu félagsins en verð fyrir íbúðir á sjöttu hæð er ekki uppgefið. Til þess að reikna heildarverðmæti íbúðanna gerir Viðskiptablaðið ráð fyrir meðalfermetraverði á þeim íbúðum sem verð er gefið upp.

Sjá einnig: 1,6 milljóna króna fermetraverð

Uppsett verð íbúðanna er á bilinu 59 milljónir króna til 345 milljónir og er fermetraverð ódýrustu eignarinnar tæplega 1,2 milljónir króna en ríflega 1,6 milljónir hjá dýrustu eigninni. Tæplega helmingur íbúðanna er á bilinu 170-360 fermetrar, 34% af íbúðunum á bilinu 100-150 fm. og um 20% á bilinu 50-100 fm.

Sjá einnig: Breyta 900 milljóna láni í hlutafé

Samkvæmt ársreikningi Austurhafnar ehf. fyrir árið 2018 nema heildareignir félagsins ríflega 6,8 milljörðum króna. Skuldir þess nema alls 5,6 milljörðum og eigið fé 1,2 milljörðum. Eiginfjárhlutfall félagsins var í lok ársins 2018 var 18,2%. Apartnor ehf. á tæplega 80% hlut og Arion banki á tæplega 20% hlut í félaginu.