Búið er að selja 27 íbúðir fyrir hátt í tvo milljarða króna í tveimur nýjum turnum Skuggahverfisins rúmri viku eftir að þær voru fyrst auglýstar til sölu. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu .

Stefnt er að því að afhenda íbúðir í fyrri turninum að Lindargötu 39 í júlí á næsta ári, en uppsteypa á turninum er langt komin. Dýrasta óselda íbúðin er þar á 10. hæð og kostar 183,8 milljónir króna og er 257 fermetrar. Framkvæmdir við síðari turninn á Vatnsstíg eru þó ekki eins langt komnar og er áætlað að fyrstu íbúðirnar verði þar afhentar í júlí 2016.