Einbýlishús við Fjölnisveg sem áður var í eigu félags Hannesar Smárasonar, fyrrverandi forstjóra FL Group, hefur verið selt. Húsið var auglýst fyrir hálfum mánuði og sett á það 190 milljónir króna.

Sverrir Kristinsson, framkvæmdastjóri Eignamiðlunar, sem sá um sölu á húsinu, segir í samtali við Fréttatímann í dag að ekki sé hægt að gefa upp um verðið sem húsið fór á. Það hafi verið viðunandi að mati seljanda.

Félag Hannes sem var skráð fyrir húsinu heitir Fjölnisvegur 9. Landsbankinn tók það yfir fyrir tveimur árum vegna skulda Hannesar.