Stjórn Landssambands veiðifélaga (LV) hefur lýst furðu sinni yfir hugmyndum Hafrannssóknarstofnunar um að hefja stórfellt sjókvíaeldi á frjóum norskum laxi í Ísafjarðardjúpi. Áform stofnunarinnar sem fram kom í fréttatilkynningu um 3000 þúsund tonna laxeldi eigi ekkert skylt við tilraunir og eru að matil LV aðeins til þess fallnar að stíga óheillaskref í þá átt að opna Ísafjarðardjúp fyrir þauleldi á frjóum norskum laxi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu LV.

Landssambandið telur að þauleldi Hafrannsóknarstofnunar og mögulegra samstarfsaðila á laxi í sjó af þeirri stærðargráðu sem tilkynnt hefur verið falli ótvírætt undir ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum og skuli því sæta umhverfismati líkt og aðrar ámóta framkvæmdir.

Landssambandið bendir í tilkynningunni á að Skipulagsstofnun hefur þegar gefið út álit um laxeldi í Ísafjarðardjúpi og fram hjá niðurstöðu stofnunarinnar verður ekki litið þótt hér sé leitast við að bregða sauðagæru yfir úlfinn þegar enn og aftur er ráðist með sjókvíaeldi gegn íslenskri náttúru. Að sögn LV er á öllu þessu máli „fingraför stjórnmálanna“ og trúverðugleiki Hafrannsóknarstofnunarinn sem sjálfstæðrar vísindastofnunar sé því í húfi. Stofnkostnaður við þessa svokölluðu tilraun í Ísafjarðardjúpi muni hlaupa á milljörðum króna og allar upplýsingar um áhrif eldis á náttúruna sem þarna skal afla liggja nú þegar fyrir. Nær væri að sögn LV að fylgjast með áhrifum sjókvíeldisins á suðurfjörðum Vestfjarða.