Fyrirtæki Lyf og heilsa hf. er ekki í söluferli og ekki stendur til að selja félagið þrátt fyrir sögusagnir þess efnis. Þetta staðfestir Karl Wernersson, eigandi og fyrrverandi framkvæmdarstjóri félagsins í samtali við Viðskiptablaðið.

Í árslok 2014 voru eignir fyrirtækisins 2.861,4 milljónir króna, en ekki liggur fyrir ársreikningur fyrir árið 2015. Á sama tíma var eigið fé félagsins 617,1 milljón króna og rekstrarhagnaður félagsins 334,2 milljónir króna.