Haukur Ingason, eigandi Garðs Apóteks, og Lyf og heilsa hafa undirritað með sér samning þess efnis að Lyf og heilsa taki yfir rekstur Garðs Apóteks, sem áfram verður rekið undir því nafni.

Garðs Apótek hefur verið starfrækt frá árinu 1956 og verður því 65 ára á næsta ári. Apótekið var fyrst að Hólmgarði 34, þaðan sem apótekið dregur nafn sitt, en var síðar flutt að Sogavegi 108 þar sem það er nú staðsett.

Stofnandi og fyrsti lyfsali Garðs Apóteks var Mogens A. Mogensen og rak hann apótekið til loka árs 1984 er Örn Ævarr Markússon tók við og var lyfsali til loka árs 1997. Jón R. Sveinsson tók þá við apótekinu og rak apótekið til 1. ágúst 2006 er núverandi apótekari Haukur Ingason keypti apótekið og tók við lyfsöluleyfinu.

„Það er kominn tími til að breyta til eftir 14 ár í þessu starfi og Lyf og heilsa er rétti aðilinn til að taka við apótekinu og þjónusta okkar viðskiptavini áfram,“ segir Haukur. „Ég mun áfram vera leyfishafi í einhvern tíma á meðan nýir aðilar taka við. Garðs Apótek verður áfram rekið undir óbreyttu nafni sem gleður mig og marga aðra sem tengjast apótekinu.”

Samningurinn er með þeim fyrirvara að leyfi Samkeppniseftirlits fáist fyrir kaupunum. Lyf og heilsa reka um 30 apótek víðs vegar um landið undir merkjum Lyfja og heilsu og Apótekarans.

„Mörg þeirra byggja á gömlum grunni eins og Garðs Apótek þannig að apótekið verður þar í góðum félagsskap,“ segir Haukur jafnframt.