Lyf og Heilsa
Lyf og Heilsa
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Fyrirtækið Lyf og heilsa hefur stefnt Samkeppniseftirlitinu vegna ákvörðunar þess um að sekta fyrirtækið um 100 milljónir króna vegna alvarlegra samkeppnisbrota þess gegn Apóteki Vesturlands á Akranesi.

Mál fyrirtækisins gegn Samkeppniseftirlitinu verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykavíkur á föstudaginn samkvæmt dagskrá héraðsdóms. Fyrirtækið krefst ógildingar stjórnarathafnar, þ.e. ákvörðunarinnar um 100 milljóna króna sektina.