Lyfja hefur náð samkomulagi við Árbæjarapótek um kaup á rekstri apóteksins, en Árbæjarapótek hefur starfað frá árinu 1971. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Þetta eru tímamót fyrir mig en ég hef ákveðið að láta af störfum sem lyfsöluleyfishafi Árbæjarapóteks.  Ég á eftir að sakna þess góða starfsfólks sem verður áfram hjá apótekinu sem og okkar viðskiptavina,“ er haft eftir lyfsalanum Kristjáni Steingrímssyni í tilkynningunni.

„Árbæjarapótek er gott apótek, við hlökkum til að vinna með starfsfólkinu í Árbæ að því að veita viðskiptavinum áfram framúrskarandi þjónustu," segir Þórbergur Egilsson, sviðsstjóri smásölu Lyfju í tilkynningunni.

Tekið er fram í tilkynningunni að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.