Á föstudaginn verður haldinn fjárfestadagur í höfuðstöðvum Arion banka en þar munu tíu fyrirtæki kynna hugmyndir sína. Arion banki og Klak Innovit hafa staðið saman að Startup Reykjavík þar sem þessi tíu fyrirtæki hafa þróað hugmyndir sínar.

Herberia er fyrirtæki sem sérhæfir sig í lyfjaframleiðslu þar sem plöntur eru notaðar í framleiðsluna. VB Sjónvarp mun á næstu dögum kynna öll tíu fyrirtækin.