Sigurður Ingi Jóhannsson og Elisabeth Aspaker sjávarútvegsráðherrar Íslands og Noregs hafa gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem að þau lýsa yfir undrun sinni á því að Evrópusambandið og Færeyingar hafi átt í tvíhliða samningaviðræðum um veiði Færeyinga á síld umfram ráðgjöf Alþjóða Hafrannsóknaráðsins.

Í sameiginlegri yfirlýsingu frá ráðherrunum segir að í mars á þessu ári hafi Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Rússland náð samkomulagi um síldveiðarnar þar sem gert er ráð fyrir sama hlut til Færeyinga eins og þeir höfðu samkvæmt fyrri samningi.

Engu að síður fagna þau því að Evrópusambandið hafi ákveðið að aflétta viðskiptaþvingunum af Færeyingum.