Microsoft gerði samning til fimm ára við NFL-deildina í amerískum fótbolta um að spjaldtölvur fyrirtækisins yrðu notaðar á hliðarlínunni af leikmönnum og þjálfurum í deildarkeppninni, en fyrirtækið borgaði NFL 400 milljónir bandaríkjadala fyrir samninginn.

Eins og VB.is hefur áður greint frá lenti Microsoft hins vegar í vandræðum í fyrstu leikviku deildarinnar þegar sjónvarpslýsendur kölluðu spjaldtölvurnar í sífellu iPads, sem eru spjaldtölvur frá Apple sem er einmitt helsti samkeppnisaðili Microsoft.

Microsoft ætlaði að leiðrétta misskilninginn og tryggja að þetta endurtæki sig ekki. Það hefur hins vegar ekki gengið vel því LA Times greinir frá því að sjónvarpslýsendur hafi ekki enn látið af villunni - Microsoft til mikils ama. Líklega hlakkar þó í Apple-mönnum sem hafa ekki þurft að leggja út krónu fyrir þessa miklu auglýsingu.