Í gær gekk Lýsi hf. frá kaupum á 53% hlut í fyrirtækinu IFEX ehf., en fyrir átti Lýsi 47% eignarhlut. IFEX er fyrirtæki sem frá árinu 2001 hefur sérhæft sig í framleiðslu fóðurs fyrir hunda og ketti. Hjá fyrirtækinu starfa 10 manns. IFEX rekur verksmiðju í Þorlákshöfn sem liggur vel að helstu fiskimiðum okkar. Ennfremur hefur fyrirtækið framleitt Harðbita og Snakkbita til manneldis. Um 95% framleiðslunnar hafa verið flutt úr landi til Bandaríkjanna, Evrópu og Asíu segir í frétt Lýsis.

Vörurnar hafa hlotið góðar móttökur erlendis enda ekki mörg fyrirtæki sem framleiða hunda- og kattamat úr hreinum íslenskum fiski án allra aukaefna. Það hefur lagt metnað sinn í að framleiða eingöngu hágæðavöru unna úr íslensku hráefni.

Lýsi er þekkt fyrir framleiðslu sína á einstökum hollustuvörum svo sem þorskalýsi og Omega 3 vörum sem framleiddar eru í fullkomnustu verksmiðju sinnar tegundar í heiminum. Var hún tekin í notkun árið 2005. En Lýsi framleiðir einnig fóðurmjöl og fóðurlýsi og sér aukin tækifæri með kaupunum. Katrín Pétursdóttir:? Við sjáum fyrir okkur margs konar samlegðaráhrif í þróun, framleiðslu og sölu vara beggja fyrirtækjanna. Unnt er auka verulega framleiðslu gæludýrafóðurs og Lýsi hefur þekkinguna á því hvernig nota má bætiefni til að ná fram enn meiri hollustu í fæði dýranna. Það fer vel á að Lýsi stuðli að því að hundar, kettir og önnur dýr eigi einnig greiðan aðgang að hollustufæði, ekki síður en mannfólkið. Bæði fyrirtækin eru með starfstöðvar í Þorlákshöfn sem auðveldar öll samskipti?.