Fjármálafyrirtækið Lýsing mun á næstu dögum ganga frá kaupum á eignaleigufyrirtækinu Lykli. Morgunblaðið greinir frá þessu. Síðarnefnda fyrirtækið er hluti af MP banka.

Við kaupin mun Lýsing taka yfir meira en tvö þúsund bílasamninga, bílalán og kaupleigusamninga vegna ýmissa atvinnutækja.

Rekstur Lýsingar gekk erfiðlega fyrst eftir bankahrunið en fyrir fáeinum mánuðum var fjárhagslegri endurskipulagningu lokið.