Félag atvinnurekenda hefur sent Fjármálaeftirlitinu erindi þar sem óskað er eftir tölulegum upplýsingum um fjármögnunarleigusamninga Lýsingar. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Félagið telur að Lýsing brjóti lög með því að viðurkenna ekki umsaminn endurkauparétt viðskiptavina sinna. Yfir þessu hafi margir kvartað. Athugasemdirnar snúist þá að því að Lýsing viðurkenni ekki endurkauparétt viðskiptavina þrátt fyrir að um hann hafi verið samið, í sumum tilvikum skriflega.

„Komu þessi sinnaskipti upp eftir að deilur tóku að rísa um skilin á milli leigusamninga annars vegar og lánssamninga hins vegar. Eftir þann tíma tók Lýsing upp á því að þræta fyrir framangreinda skuldbindingu,“ hefur Fréttablaðið eftir erindinu til Fjármálaeftirlitsins.