Lýsing hf. tók í dag formlega við eignasafni Lykils frá MP banka í samræmi við kaupsamning aðila 21. mars og lögbundið samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Lykill býður bílasamninga og bílalán auk kaupleigusamninga til fjármögnunar á öku- og atvinnutækjum. Starfsemin verður áfram rekin undir vörumerkinu Lykill.

Í tilkynningu segir að viðskiptavinir Lykils eigi ekki að verða fyrir neinni röskun við færslu viðskipta þeirra yfir til Lýsingar. Réttindi og skyldur samkvæmt samningum breytast ekki vegna flutningsins.