Þann 10. desember s.l. gerði M-Holding ehf., félag í eigu Baugs Group, Straums Fjárfestingarbanka og B2B Holding, öllum hluthöfum A/S Th. Wessel & Vett, Magasin du Nord tilboð í hlut þeirra í félaginu. Gengi bréfa í yfirtökutilboðinu var DKK 162,5 á hvern hlut og mæltu fráfarandi og núverandi stjórnir með tilboðinu.

Tilboðið rann út þann 7. janúar s.l. og hafði M-Holding þá eignast alls 80,9% hlutafjár félagsins. M-Holding hafði jafnframt tryggt sér kauprétt á 13,5% hlut Magasin du Nord Fond. Verði sá kaupréttur nýttur verður eignarhlutinn alls 94,4% og mun M-Holding þá óska eftir innlausn á útistandandi hlutum í félaginu og afskrá það úr Kauphöllinni í Kaupmannahöfn.

"Vegna fréttaflutnings danskra og íslenskra fjölmiðla um yfirtöku M-Holding á Magasin er rétt taka fram að Kauphöllin í Kaupmannahöfn hefur sent frá sér bréf þess efnis að hún hafi hvorki athugasemdir við þau hlutafjárkaup M-Holding sem mynduðu yfirtökuskylduna, né við yfirtökutilboðið," segir í tilkynningu félagsins.