Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að grípa ekki til aðgerða í tilefni af notkun Go Green ehf. á léninu gogreencars.is. Kvartað hafði verið yfir notkun lénsins af hendi eiganda lénsins greencar.is en sá hafi rekið vistvæna bílaleigu á léninu um árabil.

Neytendastofa taldi að auðkennin innihéldu almenn orð sem ekki væri hægt að vernda og auk þess væri áhersluorðið „go“ fremst í vörumerki Go Green dragi úr hættu á ruglingi.

Í úrskurði áfrýjunarnefndar kemur fram að heiti og auðkenni fyrirtækjanna vísi til þess að bæði fyrirtæki leigi út eða hafi milligöngu um leigu á bifreiðum sem séu umhverfis- eða vistvænar. Álíta verði að þessi aðferð til að lýsa eiginleikum bifreiða sé almenn í þeim skilningi að í daglegu tali sé grænn litur notaður til að lýsa starfsemi sem sé umhverfisvænni en almennt gengur og gerist.