Macland opnar nýja verslun í Hafnarfirði í dag. Verslunin, sem er í Helluhrauni 16-18, opnar klukkan 14:00 með sérstökum opnunartilboðum.

Síðar í dag eða klukkan 17:00 verður svo slegið upp veislu og klukkan 18:00 mæta Friðrik Dór og Pollapönk í nýja verslun Macland og skemmta gestum og gangandi.

Macland var stofnað árið 2009 og sérhæfir sig í sölu og þjónustu við allar Apple vörur.