Macy´s í Bandaríkjunum hyggst ráða inn 86 þúsund starfsmenn tímabundið fyrir og um jólin. Starfsfólkið mun starfa í verslunum Macy´s og Bloomingdale´s, í þjónustuverum og dreifingarmiðstöðvum. Þetta eru 3,6 prósentum fleiri starfsmenn en voru ráðnir inn fyrir hátíðarnar í fyrra.

Samkvæmt tilkynningu frá verslunarkeðjunni er gert ráð fyrir aukinni verslun á netinu og munu því um tíu þúsund aukastarfsmenn vinna í átta dreifingarmiðstöðvum fyrirtækisins um öll Bandaríkin.

Ráðningar á tímabundnu starfsfólki fyrir hátíðarnar þykja gefa vísbendingar um væntingar á sölu, og samkvæmt frétt Washington Post eru ýmis teikn á lofti um bjartsýni í ár. Smásala fyrir hátíðarnar er um 20% allrar smásölu í landinu.