Einn maður fannst afhausaður og fleiri eru særðir eftir árás í verksmiðju nærri Grenoble í Frakklandi. BBC News greinir frá þessu.

Þar kemur fram að grunur leiki á að liðsmaður ISIS hafi verið að verki. Einn maður hefur verið handtekinn.

Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands, er á leiðinni á vettvang árásarinnar.