IFS greining mælir með kaupum á bréfum í Icelandair Group. Telur ráðgjafafyrirtækið að sannvirði hlutar í félaginu sé 17,9 krónur en markaðsverð er 17 krónur á hlut.

Í virðismatinu er hins vegar einnig bent á þá óvissu sem stórfelld flugvélakaup félagsins á næstu árum sem og yfirvofandi kjaradeilur valda varðandi rekstur þess og virði.