Hver hlutur í stoðtækjafyrirtækinu Össuri er 290 króna virði, að mati IFS greiningar, en IFS gaf út nýtt virðismat á miðvikudaginn. Mælir IFS með kaupum á bréfum í Össurr. Lokaverð bréfanna á miðvikudag var 275 krónur og hækkuðu þau um 3,4% yfir daginn.

Í Morgunpósti sínum segir IFS að Össur hafi farið í vel heppnaða hagræðingu á síðasta ári sem sé að skila sér nú og mestur innri vöxtur á fyrsta fjórðungi hafi verið í stoðtækjum, sem bera hæstu álagninguna. Hvoru tveggja hafi skilað sér í ágætri arðsemi sem von sé á að gefi tóninn fyrir framhaldið.