Mikilvægt er að allir, bæði hið opinbera og einkaaðilar, haldi aftur af hækkun gjaldskráa sinna og almennri verðhækkun á vöru og þjónustu, að mati Samtaka atvinnulífsins (SA). Á vef samtakanna er bent á að frá því í febrúar á þessu ári hafi verðbólga verið innan markmiða Seðlabankans og ráðist þróunin á næstunni fyrst og fremst af því hvort gengi krónunnar helst stöðugt og hvort takist að ná skynsamlegri niðurstöðu í kjarasamningum á vinnumarkaði.

Greinin er birt í kjölfar þess að Hagstofan birti tölur um þróun verðbólgunnar. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,34% og mælist fór verðbólga við það úr 3,8% í 4,3%. SA bendir á að hækkanir síðastliðna 12 mánuði stafi fyrst og fremst af lækkun gengis krónunnar og af almennum launahækkunum og hækkun gjaldskráa í seinna tilvikinu.

SA setur þetta í samhengi við kjarasamninga sem verða lausir í haust:

„Mikilvægt er að komandi kjarasamningar stefni þessari þróun ekki í voða. Verðbólguþróunin undanfarna mánuði ýtir undir nauðsyn þess að skynsamlegir kjarasamningar náist á vinnumarkaði þar sem launahækkunum er stillt í hóf. Það er allra hagur að halda verðbólgunni í skefjum. Það leiðir til minni hækkana verðtryggðra lána fólks og fyrirtækja og eykur líkur á því að niðurstaða kjarasamninga skili almenningi auknum kaupmætti.“