Magnús Jóhannessson var í dag valinn til að verða fyrsti framkvæmdastjóri fastaskrifstofu Norðurskautsráðsins sem stofna á í Tromsø Noregi á næsta ári. Valið var tilkynnt á fundi embættismannanefndar Norðurskautsráðsins, sem fram fer í Haparanda í Norður-Svíþjóð í dag.

Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að gert sé ráð fyrir að Magnús var valinn úr hópi 36 umsækjenda frá sjö af átta aðildarríkjum Norðurskautsráðsins. Skrifstofan verður formlega opnuð eftir ráðherrafund ráðsins næsta vor og er henni ætlað að styrkja starf ráðsins og upplýsingagjöf um málefni norðurslóða.

Magnús hefur störf í febrúar á næsta ári. Hann hefur starfað sem ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins frá árinu 1992 og var áður siglingamálastjóri frá árinu 1985. Magnús er fæddur á Ísafirði.