Magnús Ægir Magnússon, annar sparisjóðsstjóri Byrs lætur af störfum fyrir félagið nú um helgina.

Þetta staðfesti Magnús í samtali við Viðskiptablaðið í kvöld.

Magnús sagði starfslok sín gerð í sátt við stjórn Byrs en vildi ekki gefa upp um ástæðu eða aðdraganda þeirra.

Að sögn Magnúsar mun hann þó áfram sitja sem stjórnarmaður í félögum tengdum Byr.

Þannig mun Magnús áfram gegna stjórnarformennsku í Tryggingasjóði sparisjóða og Allianz á Íslandi auk þess að sitja í stjórn SP fjármögnunar.