Í ljósi breytinga er ný stjórn Icelandic Group hefur gert á skipulagi félagsins hefur verið tekin ákvörðun um að ekki verði stofnað til starfs alþjóðlegs markaðsstjóra en í það starf hafði verið ráðinn Magnús Sch. Thorsteinsson. Magnús sem gegndi til 31. október sl. starfi framkvæmdastjóra Icelandic France mun því láta af störfum hjá félaginu eftir 11 ára starf. Á næstu mánuðum mun hann eftir þörfum aðstoða eftirmann sinn hjá Icelandic France, Kristján Hjaltason, við að kynnast nýju starfi.