Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss, hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að stjórn félagsins hefur ákveðið að færa verkaskiptingu stjórnar til fyrra horfs frá því fyrir síðasta aðalfund.

Magnús Kristinsson er því aftur orðinn varaformaður stjórnar en Eggert Magnússon var kjörinn í það embætti á síðasta aðalfundi, sem fór fram þann 3. mars.

Ástæðan fyrir breytingunni er sögð vera umrót á íslenskum fjármálamarkaði á undanförnum vikum og óheppilegrar opinberrar umræðu um málefni stjórnar félagsins.