Magnús Kristinsson fjárfestir hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Viðskiptablaðsins um sölu á Toyota. Í yfirlýsingunni segir að samkomulag hefur orðið um það milli hans og Landsbanka Íslands hf. að Toyota á Íslandi hf. verði sett í sölumeðferð. Þetta er liður í viðbrögðum við stórfelldri aukningu á skuldum félaga í hans eigu við bankann.

"Fyrir áeggjan stjórnenda Landsbankans tókst ég á hendur miklar skuldbindingar til að varna því, að Gnúpur fjárfestingarfélag ehf. yrði gjalþrota í lok árs 2007. Jafnframt drógst ég til að verða stór hluthafi í Landsbankanum hf. Við fall bankanna og fleiri félaga hurfu gríðarlegar eignir á einni nóttu en skuldir hafa vaxið með falli krónunnar, eins og allir þekkja. Sala eigna verður því ekki umflúin," segir Magnús í yfirlýsingu.