Félagið Materia Invest, sem var í eigu Magnúsar Ármanns og Kevin Gerald Stanford, er gert að greiða Arion banka 6,3 milljarða króna samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Kevin og Magnúsi er einnig gert að greiða hvor um sig 240 milljónir króna.

Þetta kemur fram á Vísi.is . Dómsuppsaga í máli Kaupþings gegn Materia Invest, Magnúsi og Kevin var í morgun.

Lánasamingurinn sem um ræðir var gerður í nóvember 2005. Kaupþing lánaði Materia rúmlega 4 milljarða króna lán og snéri ágreiningur jafnframt að samningum um sjálfskuldarábyrgð Magnúsar Ármanns og Kevin Stanford.

Þeim er gert að greiða málskostnað upp á eina og hálfa milljón króna.