Kaupþing Búnaðarbanki hf. seldi í dag 8,26% hlutafjár í Baugi Group hf. Fyrir söluna átti Kaupþing Búnaðarbanki hf. 19,80% eignarhlut í Baugi Group hf. Innleystur hagnaður vegna sölunnar nemur um einum milljarði króna. Bankinn eignaðist hlutinn í Baugi í tengslum við afskráningu félagsins úr Kauphöll Íslands í maí 2003. Kaupandi hlutanna er fjárfestingafélag í eigu Kevin Stanford, Magnúsar Ármann og Sigurðar Bollasonar.