Magnús Óli Ólafsson, forstjóri heildverslunarinnar Innness, verður formaður Félags atvinnurekenda næstu tvö ár. Varð þetta ljóst eftir að hann var endurkjörinn á aðalfundi félagsins, sem fór fram í gær. Magnús Óli var fyrst kjörinn formaður árið 2017 og er nú að hefja seinna kjörtímabil sitt.

Auk Magnúsar voru fjórir meðstjórnendur kjörnir á aðalfundinum. Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Bako-Ísberg og stjórnarmaður í Skakkaturni ehf. (Apple á Íslandi) og Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri og eigandi í Aflvélum, Burstagerðinni og Spodriba, voru kjörnir til tveggja ára.

Guðmundur R. Sigtryggsson, framkvæmdastjóri XCO ehf., og Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu ehf., voru kjörin til eins árs.

Fyrir situr í stjórn Anna Kristín Kristjánsdóttir, stjórnarmaður og eigandi hjá Hvíta húsinu, en hún var kjörin á aðalfundi 2018 til tveggja ára.