Forstjóri heildsölunnar Innnes, Magnús Óli Ólafsson, tekur við formennsku af Birgi S. Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Íslensku umboðssölunnar, sem formaður Félags atvinnurekenda.

Þetta var ákveðið á aðalfundi félagsins sem haldinn var í gær, en Birgir hefur verið formaður félagsins síðustu þrjú ár að því er fram kemur í frétt félagsins.

„Magnús Óli hefur setið í stjórn FA í þrjú ár og undanfarið ár verið varaformaður félagsins," segir í fréttinni.

„Birgir var kjörinn til áframhaldandi setu í stjórn til eins árs. Þá var Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi, kjörin í stjórn til tveggja ára.

Linda sat áður í stjórn FA á árunum 2009-2010, þá fyrir A. Karlsson og Besta þar sem hún var forstjóri. Bjarni Ákason, einn eigenda Epli.is og Skakkaturns, gaf kost á sér til endurkjörs til tveggja ára.

Auk þessara fjögurra sitja í sex manna stjórn félagsins þau Anna Kristín Kristjánsdóttir, eigandi og stjórnarmaður í Hvíta Húsinu, og Hannes Jón Helgason, framkvæmdastjóri Reykjafells, en þau voru kjörin til tveggja ára á aðalfundi 2016.“