Magnús Þorsteinsson stjórnarformaður Hf Eimskipafélags Íslands [ HFEIM ] sagði sig í dag úr stjórn félagsins á stjórnarfundi og lætur þegar af stjórnarsetu að eigin ósk. Magnús er annar af tveimur kjölfestufjárfestum félagsins. Sindri Sindrason var kjörinn nýr stjórnarformaður félagsins á sama fundi. Ný stjórn félagsins verður kosin á næsta aðalfundi félagsins sem haldinn verður fyrir lok febrúar 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

"Ég hef átt mjög skemmtilega tíma með Eimskipafélaginu," segir Magnús Þorsteinsson fráfarandi stjórnarformaður í tilkynningu. "Það er búið að koma félaginu á þá braut sem stefnt var að. Nú er stefnan klár og því finnst mér ágætur tímapunktur að draga mig í hlé.  Ég hef hugsað um þetta í nokkuð langan tíma og þegar hugur fylgir ekki lengur máli er skynsamlegt að hverfa frá. Ég hef staðið í viðskiptum í hartnær tvo áratugi með miklum ferðalögum og fjarveru frá Íslandi og oft hafa langir vinnudagar og nætur einkennt mitt starf. Nú er svo komið að ég ætla að einbeita mér að öðrum hlutum. Ég kveð Eimskip sáttur og tel að ef rétt verður haldið á spilum geti félagið skapað hluthöfum sínum góðan arð á næstu árum. Ég vil nota tækifærið og þakka stjórn og forstjóra fyrir samstarfið ásamt öllu því ágæta starfsfólki félagsins sem ég hef átt samskipti við.“

"Magnús hefur  unnið mjög gott starf fyrir félagið," segir Sindri Sindrason nýkjörinn stjórnarformaður félagsins. "Nú þegar hann hefur kynnt þessa ákvörðun sína vil ég fyrir hönd stjórnar félagsins óska honum alls hins besta á nýjum vettvangi. Það er mikil eftirsjá að honum úr forystusveit félagsins. Við virðum hins vegar ákvörðun hans.“

Rétt er að taka fram að ákvörðun Magnúsar tengist ekki á nokkurn hátt ákvörðun Samkeppniseftirlits gangvart Eimskip sem birt var í gær enda var Magnús  ekki tengdur félaginu á nokkurn hátt á þeim tíma sem ákvörðunin tekur til.