Eignarhaldsfélög í eigu Magnúsar Þorsteinssonar hafa í dag selt hluti sína í félögunum Samson eignarhaldsfélagi ehf., Samson Global og Topaz Equities. Samson eignarhaldsfélag er eigandi að 44,78% hlutafjár í Landsbanka Íslands hf., Samson Global er eigandi að 22,45% hlutafjár í Burðarási hf og Topaz Equites er eigandi að um 7,1% hlut í Straumi fjárfestingarbanka hf.

Eftir viðskiptin eru Samson eignarhaldsfélag ehf., Samson Global og Topaz Equities í eigu eignarhaldsfélaga í eigu Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar.

Björgólfur Guðmundsson er formaður bankaráðs í Landsbanka Íslands hf. og Björgólfur Thor Björgólfsson er stjórnarformaður Burðaráss hf.