Magnús Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum og mun hefja störf 1. febrúar.

Guðrún Eva Gunnarsdóttir mun samhliða því taka við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, en hún gegndi þeirri stöðu fram til ársins 2019, en hefur síðan starfað sem framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu Haga.

Í tilkynningu frá Högum segir að Magnús hafi mikla reynslu af stefnumótun og almennum rekstri, bæði hérlendis og erlendis. Undanfarið ár hefur hann starfað sem sjálfstæður ráðgjafi, eftir að hafa leitt stefnumótunarteymi Marel árin þar á undan. Áður starfaði Magnús sem ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company í ráðgjöf fyrir fjölda alþjóðlegra fyrirtækja með stefnumótun, rekstrarumbætur og stærri umbreytingar, og enn áður hjá hugbúnaðarfyrirtækinu AGR Dynamics. Magnús er með M.Eng. gráðu í iðnaðarverkfræði og aðgerðagreiningu frá UC Berkeley í Kaliforníu, og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Starfað sem ráðgjafi Haga frá því í sumar

„Framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar er ný staða innan Haga sem m.a. ber ábyrgð á stefnumótun og eftirfylgni, viðskiptaþróun og rekstrargreiningum, þ.m.t. stuðningi við dótturfélög er varðar greiningar og umbótaverkefni. Mikil vinna hefur átt sér stað síðastliðna mánuði við skilgreiningu á áherslum í rekstri og stefnu Haga til lengri tíma. Lykilverkefni framkvæmdastjóra stefnumótunar og rekstrar verður að styðja við framhald þessarar vinnu," segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Sjá einnig: Þrjú stef í nýrri stefnu Haga

Finnur Oddsson, sem tók við sem forstjóri Haga í lok júní síðastliðnum, segir að Magnús hafi unnið sem ráðgjafi fyrir fyrirtækið frá því í sumar við mótun áherslna Haga og dótturfélaga til framtíðar. „Sú vinna hefur gengið vel og það er afar ánægjulegt að fá hann varanlega með okkur í teymið. Magnús þekkir vel til allrar okkar starfsemi og þess sem framundan er og býr að dýrmætri reynslu úr fyrri störfum við að koma á breytingum sem skila viðskiptavinum og eigendum ávinningi. Við bjóðum Magnús sérstaklega velkominn í hópinn og væntum mikils af samstarfinu,” er haft eftir Finni í tilkynningu.

Fleiri breytingar í æðstu stöðum Haga

Fleiri breytingar hafa verið að undanförnu í stjórnendateymi Haga. Fyrirtækið réð í byrjun ársins Sesselíu Birgisdóttur sem forstöðumann nýsköpunar og markaðsmála og Eið Eiðsson sem framkvæmdarstjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni. Á sama tíma var Særúnu Ósk Pálmadóttur sagt upp sem upplýsingafulltrúa fyrirtækisins.