Jón Viggó Gunnarsson, forstjóri EJS ehf., dótturfélags Teymis, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Félagið þakkar honum góð störf og óskar velfarnaðar á nýjum vettvangi, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Magnús S. Norðdahl hefur verið ráðinn nýr forstjóri EJS ehf. Magnús starfaði á fyrirtækjasviði Glitnis banka en var áður framkvæmdastjóri rekstrarlausna Nýherja hf. og forstjóri Aco-Tæknivals hf.