Ákveðið hefur verið að gera breytingar á skipulagi Atorku Group hf. Magnús Jónsson hefur verið ráðinn forstjóri Atorka Group hf. og lætur hann samhliða af störfum sem starfandi stjórnarformaður félagsins og víkur tímabundið úr stjórn.

Þorsteinn Vilhelmsson hefur verið kjörinn stjórnarformaður félagsins.