Magnús Þór Ásmundsson hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Alcoa Fjarðaáli. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Hann hefur starfað hjá Fjarðaáli frá árinu 2009, fyrst sem framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar, síðan sem forstjóri móðurfélagsins Alcoa á Íslandi frá 2012 og jafnframt sem forstjóri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði frá 2014.

Smári Kristinsson, framkvæmdastjóri álframleiðslu, tekur tímabundið við starfi forstjóra Fjarðaáls þangað til nýr forstjóri verður ráðinn. Magnús Þór verður nýjum stjórnendum jafnframt innan handar næstu misseri.

„Tíminn hjá Alcoa hefur verið afar gefandi. Ég er þakklátur því góða starfsfólki sem ég hef unnið með og er stoltur af árangri okkar hjá Fjarðaáli í umhverfis-, öryggis- og jafnréttismálum,“ segir Magnús Þór.

„Magnús Þór hefur starfað fyrir Alcoa í tíu ár og verið einn af lykilmönnum í uppbyggingu Fjarðaáls frá upphafsárum þess og við þökkum Magnúsi fyrir hans góða framlag til fyrirtækisins,“ segir Kai-Rune Heggland yfirmaður álframleiðslusviðs Alcoa í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Ástralíu.