Magnús Ingvar Magnússon, héraðsdómslögmaður, hefur hafið störf hjá LOCAL lögmönnum að því er kemur fram í tilkynningu.

Magnús útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2017 og varð héraðsdómslögmaður síðar sama ár. Áður starfaði Magnús hjá Legis lögfræðistofu þar sem hann fékkst við verkefni á sviði samkeppnisréttar, kröfuréttar og gjaldþrotaskiptaréttar. Í starfi sínu þar aðstoðaði Magnús meðal annars verjendur í stóru sakamáli á sviði samkeppnisréttar og sinnti margvíslegum verkefnum í tengslum við skuldaskil.

LOCAL lögmenn fagna kraftmikilli viðbót við sterkan hóp lögmanna stofunnar, sem sérhæfir sig í þjónustu við atvinnulífið að því er segir í tilkynningunni.