Reiknistofa bankanna hefur gengið frá ráðningu Magnúsar Böðvars Eyþórssonar í starf framkvæmdastjóra sviðsins Tæknirekstur og þjónusta. Hann hóf störf hjá félaginu í maí mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Magnús hefur undanfarin fjögur ár verið forstjóri Símans DK í Danmörku. Hann var meðal annars framkvæmdastjóri hjá Skyggni árin 2009 – 2011, forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá Símanum 2006 - 2009 og framkvæmdastjóri þjónustulausna hjá Skýrr árin 1999 – 2006. Að auki hefur Magnús Böðvar setið í stjórnum fjölda fyrirtækja bæði á Íslandi og erlendis.

Magnús útskrifaðist sem véltæknifræðingur með BSc gráðu frá Helsingör í Danmörku árið 1983.