Mahmoud Abbas forseti palestínsku stjórnarinnar verður á Íslandi á morgun þriðjudaginn 22. Apríl samkvæmt tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands.

Hann mun eiga fund með forseta Íslands og snæða hádegisverð á Bessastöðum en síðdegis mun hann eiga fund með Ingibjörg Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra.

Abbas er á leið til Bandaríkjanna til fundar við George W. Bush forseta í Washington.