Í brúnni á Hoffelli situr Sigurður Bjarnason, nýráðinn skipstjóri,  og siglir í land með 790 tonn af makríl. Er þetta fyrsti makríltúr Sigurðar á Hoffellinu.  Þegar greinarhöfundur heyrði í Sigurði var Hoffellið úr af Berufirði og reiknaði skipstjórinn með að þeir yrðu í heimahöfn á Fáskrúðsfirði um kl. 20.30 sunnudagskvöldið 14.júlí.   Aðspurður sagði Sigurður að það hefði gengið vel.

„Við vorum í tvo og hálfan sólarhring á veiðum og fengum þennan afla suðvestur af Vestmannaeyjum,“ er haft eftir Sigurður Bjarnason, skipstjóra á Hoffellinu, í spjalli á vef Loðnuvinnslunnar.

Sigurður er nýr skipstjóri á Hoffellinu, nýkominn úr sínum fyrsta makríltúr á skipinu. Hann sigldi í land í gærkvöld með 790 tonn af makríl.

Hann sagði að vel hafi gengið, veðrið hafi verið gott, nokkur kaldi á leiðinni út en síðan bara blíða.  Hann sagði líka að skipið hefði reynst vel og áhöfnin væri góð.

„Þetta eru flottir strákar og mér líst mjög vel á þetta allt saman,“ bætti skipstjórinn við.

Löndun úr Hoffellinu hófst fljótlega eftir að það lagðist við bryggju og þegar aflinn verður kominn í land verður haldið á miðin á nýjan leik.

„Ég er mjög sáttur og  það eru næg verkefni framundan,“ sagði Sigurður Bjarnason skipstjóri á Hoffellinu að lokum og segir greinarhöfundur Loðnuvinnslunnar fulla ástæðu til að óska honum og áhöfninni til hamingju með samstarfið.