Mál Gunnars andersen, fyrrum forstjóra FME, er enn til meðferðar hjá embætti ríkissaksóknara. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir í svari við fyrirspurn viðskiptablaðsins að erfitt sé að segja til um hvenær ákvörðun verður tekin um hvort ákært verður í málinu eða ekki.

„Ég reyni að ljúka því sem fyrst en get ekki lofað neinu,“ segir Helgi Magnús. stjórn FME kærði Gunnar til lögreglu þann 1. mars síðastliðinn og lauk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsókn sinni einum og hálfum mánuði síðar og sendi málið til ríkissaksóknara.