Mál Samkeppniseftirlitsins gegn Icelandair var í dag sent aftur til héraðsdóms eftir að Hæstiréttur ómerkti dóm héraðsdóms. Of langur tími leið á milli aðalmeðferðar í málinu og dómsuppsögu.

Forsaga málsins er að í júní 2007 staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að Icelandair hafi brotið á samkeppnislögum. Það hafi félagið gert með kynningu og sölu á flugargjöldum, svokölluðum Netsmellum, sem stóðu viðskiptavinum félagsins til boða á flugleiðinni milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar annars vegar og á milli Keflavíkur og London hinsvegar. Niðurstaða áfrýjunarnefndar var sú að félagið hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið gegn samkeppnislögum.„Var þetta til þess fallið að veikja samkeppni frá Iceland Express. Var Icelandair gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 130 milljónir króna í ríkissjóð. Icelandair skaut úrskurði áfrýjunarnefndar til dómstóla.“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins um málið.

„Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 2. febrúar 2010 var staðfest sú niðurstöða áfrýjunarnefndar að Icelandair hafi verið markaðsráðandi stöðu og misnotað hana og þar með brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga. Héraðsdómur taldi hins vegar brotin ekki eins alvarleg og lagt var til grundvallar í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála og felldi úr gildi sektarákvörðun áfrýjunarnefndar.

Samkeppniseftirlitið taldi það ekki rétta niðurstöðu að fella niður sekt Icelandair og áfrýjaði þessum dómi héraðsdóms til Hæstaréttar. Leit eftirlitið svo á að ágallar hefðu verið málsmeðferð héraðsdóms og krafðist m.a. þess að dómur hans yrði ómerktur og málinu vísað aftur heim í hérað.

Hæstiréttur hefur í dag ómerkt dóm héraðsdóms þar sem of langur tími leið á milli aðalmeðferðar í málinu og dómsuppsögu. Kemur málið því aftur til efnislegrar meðferðar hjá héraðsdómi.“